Eggjakaka
Eggjakaka

Eggjakaka

Frábær á milli mála

2 Nesbú egg
3 eggjahvítur (ca 100 g)
2/3 dl mjólk (einnig hægt að nota matreiðslurjóma eða rjóma)
sveppir
skinka
ferskt brokkolí
rifinn ostur (líka hægt að nota ferskan mozzarella ost eða brie ost, skorið í bita)
smör eða olía til steikingar
1/2 tsk basilika krydd
1/2 tsk oregano krydd
salt og pipar

Aðferð:
Setjið egg og eggjahvítur í skál ásamt mjólk, pískið þessu létt saman, bætið kryddinu út í. Skerið sveppina fremur gróft og steikið þá á pönnu. Því næst er eggjahrærunni hellt út á pönnuna. Skinkan er skorin niður í bita ásamt brokkolíi og hvoru tveggja bætt út í ásamt ostinum Látið eggjakökuna malla á meðalhita, gætið þess að hafa hann ekki of háan þannig að eggjakakan brenni ekki. Pikkið í hræruna á meðan hún er að þykkna til að flýta fyrir.

Þegar kakan hefur stífnað vel er henni snúið við og hún steikt á hinni hliðinni í nokkrar mínútur. Það er hægt að snúa við kökunni til hálfs (í hálfmána) ef maður treystir ekki til að snúa henni við í heilu. Einnig er hægt að sleppa því að snúa henni við, setja lok á pönnuna og fullelda eggjakökuna þannig á annarri hliðinni. Einnig er gott að klára eldunina inni í bakarofni í nokkrar mínútur ef pannan er ofnheld.

 

Uppskrift fengin af Eldhussogur.com

Fleiri girnilegar uppskriftir í flokknum Aðalréttir

  • Mozzarellafylltar kjötbollur í chili-rjómasósu

    Mozzarellafylltar kjötbollur í chili-rjómasósu

  • Lambaborgarar með fetaosta- og avókadósósu

    Lambaborgarar með fetaosta- og avókadósósu

    5 x 200 grömm
  • Kálfa Parmigiana

    Kálfa Parmigiana

    Fyrir c.a 6
  • Pizza með hakkbotni

    Pizza með hakkbotni

  • Asískar kjötbollur

    Asískar kjötbollur

    ca. 50 litlar kjötbollur
  • Pönnukaka með nautahakki

    Pönnukaka með nautahakki

  • Kjúklingur með ostasnakki, sætum kartöflufrönskum og kryddjurtasósu með hvítlauk

    Kjúklingur með ostasnakki, sætum kartöflufrönskum og kryddjurtasósu með hvítlauk

  • Kjötpizza

    Kjötpizza

    Tilbreyting frá venjulegum Pizzum
  • Kjúklingabaunabuff

    Kjúklingabaunabuff

    u.þ.b 7 stk
  • Innbakað nautahakk

    Innbakað nautahakk

    Ljúffengt!
  • Sænskar kjötbollur

    Sænskar kjötbollur

    15 litlir skammtar
  • Parmesan og kryddjurtakjuklingur

    Parmesan og kryddjurtakjuklingur

    Gómsætur kjúklingur
  • KFC kjúklingur með sinnepsjógurtsósu

    KFC kjúklingur með sinnepsjógurtsósu

    kfc hvað
  • Laxabuff með ferskum kryddjurtum, kúskúsi og avókadó - chilisósu

    Laxabuff með ferskum kryddjurtum, kúskúsi og avókadó - chilisósu

    Hollt og gott
  • Blómkáls- og brokkolígratín

    Blómkáls- og brokkolígratín

    Gómsætur og hollur réttur
  • Nautahakksrúlla með beikoni, sveppum og eplum

    Nautahakksrúlla með beikoni, sveppum og eplum

    Réttur fyrir 3-4
  • Eggja- og beikonmúffur

    Eggja- og beikonmúffur

    12 stk.
  • Hakkpanna með eggjum

    Hakkpanna með eggjum

    Baaara gott