Hitið ofninn i 175°C og setjið bökunarpappír á ofnplötur.
Byrjið á því að poppa á gamla mátan. Hellið síðan smjörinu sem þið eruð búin að bræða yfir poppið og stráið salti yfir það. Passið að skilja ekkert popp eftir sem er ópoppað eða hálfpoppað. Þetta ættu að vera fjórir til fjorir og hálfur bolli af poppi.
Blandið hveiti, matarsóda og salti saman í skál og setjið til hliðar.
Blandið smjöri, púðursykri og sykri saman í annarri skál í um það bil tvær mínútur. Bætið eggjunum saman við og vanilludropum og hrærið í um eina mínútu í viðbót.
Blandið þurrefnablöndunni hægt og rólega saman við smjörblönduna.
Blandið poppi og Maltesers rólega saman við með sleif. Passið að kremja ekki poppið.
Búið til kúlur úr deiginu og setjið á ofnplöturnar. Skreytið kúlurnar með grófu sjávarsalti og bakið í tíu til tólf mínútur.