Marengs:
2 dl sykur
1 dl púðursykur
4 Nesbú eggjahvítur (130 g)
3 bollar Rice Krispies
Ofn hitaður í 120 gráður við blástur (ef baka á báða botnana samtímis) eða 130 gráður við undir- og yfirhita. Eggjahvítur, púðursykur og sykur er þeytt þar til marengsinn er orðinn stífur. Þá er Rice Krispies bætt varlega út í marengsinn með sleikju. Diskur eða kökuform sem er um það bil 23 cm. í þvermál er lagt á bökunarpappír og strikaður hringur eftir disknum. Þetta er gert tvisvar. Marengsinum er skipt í tvennt og hann settur á sitt hvorn hringinn. Því næst er slétt jafnt úr marengsinum innan hringsins með sleikju eða spaða. Þá er marengsinn bakaður í 120°C (blástur) í heitum ofni í um það bil 60 mínútur. Best er að láta marengsinn kólna í ofninum.
Rjómafylling:
5 dl rjómi
250 g fersk jarðaber, skorin í bita
ca. 200 g fersk bláber
8 molar Fazermint súkkulaðimolar (ca. 60 g), saxaðir smátt
Rjóminn er þeyttur og berjunum ásamt Fazermint molunum er blandað út í rjómann. Rjómablandan er svo sett á milli marengsbotnanna þegar þeir eru orðnir kaldir.
Súkkulaðikrem:
4 Nesbú eggjarauður (100 g)
4 msk flórsykur
12 molar Fazermint piparmyntusúkkulaði (ca. 90 g)
100 g 70% suðusúkkulaði
Eggjarauður og flórsykur þeytt vel saman. Suðusúkkulaðið er brotið niður í skál ásamt Fazermint molunum og brætt yfir vatnsbaði. Ef súkkulaðiblandan er of þykk er hægt að bæta örlítilli mjólk eða rjóma út í. Eggjarauðu- og flórsykurblöndunni er svo blandað út í súkkulaðið. Kreminu er því næst dreift yfir marengstertuna. Skreytt með berjum, t.d. jarðaberjum, bláberjum, hindberjum, rifsberjum og blæjuberjum. Tertan er geymd í ísskáp og er góð, ef ekki betri, daginn eftir.
Uppskrift fengin af Eldhussogur.com