Hitið ofninn í 180° gerið form tilbúið. Ég notaði tvö mini-formkökuform sem ég keypti í Tiger um daginn - ég mæli með þeim!
Blandið sykri og smjöri vel saman. Bætið eggjunum við, eitt í einu.
Blandið því næst vanilludropum, sýrðum rjóma og rjóma saman við.
Blandið hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti saman við og blandið vel. Bætið kókosflygsunum út í og hrærið varlega með sleif eða sleikju. Setjið blönduna í form og búið til mulning.
Mulningur
Blandið púðursykri, sykri og hveiti saman í skál. Bræðið smjör og hellið því yfir. Blandið því næst kókosflygsunum saman við.
Setjið mulninginn yfir deigið og drissið því næst hvítum súkkulaðidropum yfir. Bakið í 45 til 55 mínútur - allt eftir stærð formsins. Psst! Hér er líka hægt að búa til mjög skemmtileg möffins - þá er bökunartími sirka 25 til 30 mínútur.